Mikilvægar upplýsingar til ökunema og forráðamanna vegna hertari reglum vegna COVID 19

Munum tveggja metra regluna
Munum tveggja metra regluna

Í dag voru tilkynntar breytingar á takmörkunum vegna COVID 19. Þetta þýðir að verklagsreglur við ökukennslu munu breytast nokkuð. Frá og með kl 12 föstudaginn 31. Júlí 2020.

Verklegir ökutímar munu fyrst um sinn ekki falla niður miðað við reglurnar í dag. Staðan verður hinsvegar oft endurmetin og mun ég taka ákvörðun með tilliti til reglna og aðstæður hverju sinni hvort verkleg kennsla geti haldið áfram.

Eftirfarandi hlutir verða í gildi í verklegri kennslu:

  • Þar sem við náum ekki að halda 2 metra á milli nema og kennara þurfum við að nota grímur í kennslustundum. Þær verða í boði í bílnum.
  • Allir nemar munu þurfa að spritta sig og fara í hanska áður en sest er undir stýri. Hanskar verða einnig í boði í bílnum.
  • Gestir í bílnum í kennslustund eru EKKI leyfðir undir neinum kringumstæðum nema 2 æfingaakstursleiðbeinendur sem búa á sama heimili og ökuneminn, en þeir mega koma með í síðasta tíma fyrir æfingaakstur.
  • Bíllinn er ávallt sótthreinsaður milli allra nema, krafan er að snertifletir séu hreinsaðir, sú sótthreinsun mun nú verða enn viðfangsmeiri og nákvæmari en áður þar sem ég vil ganga lengra en að sótthreinsa bara snertifleti, þetta þýðir að ég gæti þurft meiri tíma milli nema til þess að sótthreinsa bílinn en venjulega og gæti ég því verið örlítið á eftir áætlun, sérstaklega eftir því sem líður á daginn, ég vona að þið hafið skilning á þessu.
  • Nemar henda grímu og hönskum í ruslapoka sem er í skottinu á bílnum en þennan búnað má ekki endurnýta. Ég vil ekki að nemar taki þetta með heim af sóttvarnarástæðum.

 

Ég vil einnig taka það skýrt fram að sé nemi, einhver á heimilinu eða einhver sem nemi er í samneyti við með einkenni COVID 19, aðili sem er í einangrun, sóttkví eða í heimkomusmitgát á nemi ALLS EKKI að mæta í tíma. Afbókið þá tímann strax og við finnum annan tíma þegar það er öruggt.

Semsagt. Ef einhver er með kvef-, flensu- eða COVID19 einkenni er sá hinn sami ekki velkominn í ökutíma og verður nemum vísað frá ef hinn minnsti grunur vaknar og ekki er búið að afbóka tíma eins og á að gera undir þessum kringumstæðum.

Þetta á einnig við um þá sem hafa verið í samskiptum við fólk sem á að vera í einangrun, sóttkví eða heimkomusmitgát.

 

Tíma má afbóka í Noona appinu eða á vef Ekils allt að 24 klst fyrir tíma. Ef styttri tími er til stefnu skal hringja beint í mig í síma 869 4149.

 

Endilega hafið samband ef einhverjar spurningar vakna

 

Munið: Við erum öll almannavarnir!

 

Jónas Þór Karlsson, ökukennari