Ferðir aflýstar til 1. júní

Vegna ástandsins og banna frá yfirvöldum er öllum ferðum til 1. júní 2020 aflýst.

Þeir sem áttu bókaðar ferðir fram að 1. júní fá fulla endurgreiðslu af bókunum sínum.

Vegna stöðunnar sem nú er uppi verður gerð tímabundin breyting á viðskiptaskilmálum þannig að allar ferðir sem eru á dagskrá til 30. júlí 2020 er hægt að fá endurgreiddar 100% í stað hinna venjulegu 90% þar upp að 48 klst. fyrir brottför.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.