Frumherji hækkar verðskrá ökuprófa

Nýr samningur milli Frumherja og Samgöngustofu tekur gildi 1. júní. Í takt við það tekur ný verðskrá ökuprófa gildi.

Verð fyrir hverja tilraun í bóklegu prófi hækkar úr 4.640 kr. í 6.550 kr.

Verð fyrir hverja tilraun í verklegu prófi til almennra ökuréttinda (B) hækkar úr 12.580 kr í 17.370 kr.

Verðskrá fyrir aðra flokka má finna á vef Frumherja.