Hjólastólaþjónusta og flugstrætó verða á ferðinni 17. júní. En skrifstofan verður lokuð

Flugstrætó verður á ferðinni á 17. júní en mun aka samkvæmt sunnudagsáætlun með þeirri undantekningu að brottför frá tjaldsvæði kl 12:00 verður kl 11:00 í staðinn og frá flugvelli kl 13:05 verður farin kl 12:05 í staðinn vegna breyttra flugtíma.

Hjólastólaþjónustan verður í gangi eins og venjulega. Vaktsími hjólastólaþjónustu er 835 5855. Athugið að einungis er hægt að panta hjólastólaþjónustu í þessu númeri.

Skrifstofan er lokuð 17. júní en opnar aftur á mánudaginn.

Gleðilega hátíð.